Til fyrirmyndar

Þjóðarátak um gildi fyrirmynda

Hver fær bréf frá þér?

Landsmenn eru hvattir til að skrifa bréf sem ber yfirskriftina „Takk fyrir að vera til fyrirmyndar.“ Bréfsefni hefur verið dreift inn á öll heimili landsins. Einnig er hægt að nálgast bréfsefni á pósthúsum og bensínstöðvum N1. Bréfin má setja ófrímerkt í póst innanlands í allt sumar. Tilvalið að skrifa bréf í sumarfríinu til allra þeirra sem hafa verið til fyrirmyndar!

headerheaderheaderheader

Tileinkað frú Vigdísi Finnbogadóttur og íslensku þjóðinni

Til fyrirmyndar er yfirskrift hvatningarátaks sem tileinkað er frú Vigdísi Finnbogadóttur og íslensku þjóðinni  í tilefni af því að hinn 29. júní eru  30 ár liðin frá því að Íslendingar voru til fyrirmyndar með því að vera fyrstir þjóða til að kjósa konu sem forseta í lýðræðislegum kosningum – konu sem hefur vakið jákvæða athygli fyrir störf sín og framgöngu. Með átakinu eru landsmenn hvattir til að gefa sér tíma til að staldra við og huga að því sem vel er gert, jafnt stóru sem smáu.
Sjá nánari upplýsingar hér.
Sjá allar »Hvað finnst þér »
moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf